Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Þrjár Shakespeare Sonnettur - Kammerkór Suðurl og Tavener - Listahátíð í Reykjavík 2014

$
0
0
Mynd

Á tónleikum Kammerkórs Suðurlands verða frumfluttar á Íslandi Þrjár Shakespeare-sonnettur eftir breska tónskáldið Sir John Tavener, verkið Islands (Ynysoedd) eftir breska tónskáldið Jack White og Heilsa þér Kjarval eftir Pál Guðmundsson frá Húsafelli í útsetningu Snorra Sigfúsar Birgissonar.  Í nóvember 2013 frumflutti kórinn  Sonnettur Taveners, sem hann samdi sérstaklega fyrir kórinn, á tónleikum í Southwark Cathedral í Lundúnum, ásamt verki Whites. Vegna skyndilegs fráfalls Taveners, þremur dögum fyrir tónleikana, urðu þeir óvænt að minningartónleikum um tónskáldið og hlutu mikla umfjöllun í heimspressunni.

Á tónleikunum verða einnig flutt eldri verk eftir Tavener, m.a. Schuon Hymnen, sem hann samdi fyrir Kammerkór Suðurlands  2004, og hið heimsfræga verk Song for Athene, sem flutt var við útför Díönu prinsessu. Auk þess flytur kórinn nýleg verk eftir ung íslensk tónskáld, sem samin hafa verið séstaklega fyrir kórinn, þar á meðal eftir Kjartan Sveinsson, kenndan við Sigur Rós, Völu Gestsdóttur, Georg Kára Hilmarsson o.fl.

Einsöngvarar með kórnum verða Björg Þórhallsdóttir sópran, Elísabet Einarsdóttir sópran, Tui Hirv sópran og Hrólfur Sæmundsson baríton. Sérstakur heiðursgestur og velunnari Kammerkórs Suðurlands verður hin heimsþekkta Patricia Rozario sópran. Þá syngur einnig með kórnum djúp-bassasöngvarinn Adrian Peacock, sem hefur starfað með kórnum um árabil.

Hildur Hákonardóttir sér um listræna umgjörð tónleikanna. Hún fléttar inn í umgjörðina myndverkum ýmissa listamanna, s.s. Páls frá Húsafelli og Kristínar Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu.

Jack White,  ungt tónskáld frá Whales, var valinn af bresku tónlistarsamtökunum Sound and Music sem skærasta unga stjarna Breta í um þessar mundir til að semja fyrir kórinn nýtt verk árið 2013. Tónskáldið leggur áherslu á að tengja í verkinu saman Ísland og Whales í gegnum hljóðblæbrigði vatns. Sungið er á ýmsum tungumálum , s.s. fornvelsku, ensku og íslensku, en íslenska part verksins samdi verðlaunaljóðskáldið og rithöfundurinn Sjón.

Páll Guðmundsson frá Húsafelli hefur verið náinn kórnum í gegnum tíðina, bæði í gegnum myndlist sína, höggmyndalist, hvatningu og velvilja. Nú er það heiður fyrir kórinn að frumflytja nýtt verk eftir hann, Heilsa þér Kjarval, við ljóð nafna hans og afa, Páls Guðmundssonar frá Hjálmsstöðum, í útsetningu Snorra Sigfúsar Birgissonar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.