
Hinir árlegu þematónleikar verða haldnir í Salnum í Kópavogi laugardaginn 29. Mars kl. 13:30. og 15:30. Þema tónleikanna er 20 ára afmæli Tónskólans Do Re Mi. Öll atriði tónleikanna eru eingöngu flutt í samspili af nemendum Tónskólans Do Re Mi og koma yfir 130 börn fram. Undirbúningur tónleikanna hefur staðið síðan í haust og er efnisskráin mjög fjölbreytt og skemmtileg. Má nefna að atriðin spanna fjórhent og átthent píanó á tveimur flyglum, jazz tríó, stór gítarsveit sveit, þverflautusveit, sellósveit, harmonikusveit, auk tveggja hópa píanónemenda sem leika á Marimbur frá Afríku. Forskólarnir taka einnig þátt í tónleikunum.
Selt er inn á tónleikana og er miðaverð kr. 1500 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn yngri en 14 ára. Nemendur í Tónskólanum Do Re Mi fá frítt, en þurfa að hafa samband við miðasölu Salarins.
Þeir sem vilja kaupa afsláttarmiða (kr. 500) verða að gera það gegnum miðasölu Salarins í síma 5-700-400 Athugið að sæti eru númeruð.