Clik here to view.

Vocal Project og Sniglabandið héldu sameiginlega tónleika vorið 2013 í Borgarleikhúsinu og munu nú endurtaka leikinn í Hofi 17.maí Tónleikarnir byggja á skemmtilegum popplögum úr ýmsum áttum ásamt nýjum kórútsetningum á lögum Sniglabandsins eftir Gunnar Ben, Karl Olgeirsson, Þóru Marteinsdóttur og Matthías Baldursson sem stjórnar einnig kórnum.
Sniglabandið leikur fullskipað undir og ljær tónleikunum ferskan blæ með skemmtilegum uppátækjum sínum og lifandi spjalli við áhorfendur á milli laga. Mikið er lagt upp úr útliti og hljómgæðum á tónleikunum. Segja má að allir þátttakendur leiki ákveðið hlutverk og séu í viðeigandi gervi en þannig verður til afar sterk heildarmynd. Tónlistarlega spanna tónleikarnir býsna vítt svið, allt frá einlægri ættjarðarrómantík yfir í glórulaust gítarhetjurokk. Þetta er eitthvað sem enginn má láta fram hjá sér fara, grínlaust!