The Prince Tribute Show" mætir aftur á Gaukinn. Fyrir fáeinum árum færði Seth Sharp Íslendingum "The Prince Tribute Show" við gríðarlega góðar undirtektir. Hundruðir aðdáaenda troðfylltu staðinn kvöld eftir kvöld til að bera hlustir við tónlist eins afkastamesta tónlistarmann allra tíma. Seth er sjálfur hæfileikaríkur tónlistarmaður og hefur t.a.m. sungið fyrir sjálfan bandaríkjaforsetann í Hvíta húsinu, Carnegie Hall og Riga óperuhúsinu.
Það verða eingöngu einir tónleikar haldnir. Meðal flytjenda verða:
Seth Sharp, söngvari
Jónas Orri Matthíasson, gítarleikari
Snorri Örn Arnarson, bassaleikari
Sævar Helgi Jóhannsson, hljómborðsleikari
Benjamín Bent Árnason, trommur
Linda Hartmanns, söngkona
Bryndís Torfadóttir, dansari
auk sérstakra gesta
Meðal þeirra laga sem má búast við að heyra eru: Kiss, Purple Rain, Let's Go Crazy, Cream, Darling Nikki, 1999 og fjöldinn af öðrum, stórkostlegum Prince stefum.
Miðaverð verður í algjöru lágmarki. Gjöf en ekki gjald á eingöngu 1500 KR!