Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

TINA drottning rokksins -

TINA DROTTNING ROKKSINS

Tina (Anna Mae Bullock) fæddist í Nutbush, Tennessee þann 26. nóvember árið 1939. Hún hóf söngferil sinn aðeins 16 ára gömul þegar hún kynntist tilvonandi eiginmanni sínum Ike Turner. Söngrödd Tinu var engri lík, krafturinn, tilfinningin og sviðsframkoman heillaði áheyrendur upp úr skónum, ný stjarna var fædd.

Ike og Tina gerðu það gott á sviði rythma, sálar og blústónlistar og lög eins og A fool in love, Its gonna work out fine, Nutbush city limits og Proud Mary skutu Tinu upp á stjörnuhimininn svo eftir var tekið um allan heim.

Þó frægðarsól Tinu hafi sannarlega skinið skært á árunum 1960-1978, eða þar til hún skildi við Ike, átti hún eftir að ná enn lengra.

Sólóplatan Private Dancer kom út árið 1984 og seldist í milljónum eintaka víða um heim. Breiðskífan innihélt lög eins og Whats love got to do with it, Better be good to me og Private dancer. Framhaldið þekkjum við öll. Tina hefur unnið til fjölda verðlauna og verið ein vinsælasta og dáðasta söngkona veraldar í áratugi. 

Tina lagði sönginn á hilluna árið 2009 þegar hún stóð á sjötugu á hátindi ferlis síns, ein eftirsóttasta söngstjarna fyrr og síðar, og enn með flottustu fótleggi heims.

Tina ber titilinn Drottning Rokksins, því hún er “simply the best”.

Það er íslenskt stórskotalið tónlistarmanna sem stígur á sviðið og flytur öll bestu lögin frá ferli Tinu. 

Söngkonurnar Sigríður Beinteinsdóttir, Bryndís Ásmundsdóttir, Stefanía Svavarsdóttir, Erna Hrönn og Regína Ósk eru fremstar í flokki ásamt dönsurum og hljómsveit Rigg Viðburða.

Danshöfundur: Yesmine Olsson
Búningar: Filippía Elisdóttir
Stjórnandi: Friðrik Ómar

Framleiðandi: Rigg Viðburðir


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


HOY PANGIT, MAGBAYAD KA!


Girasoles para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


EASY COME, EASY GO


5 Tagalog Relationship Rules


Hugot Lines 2020 Patama : ML Edition


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


Maganda Quotes – tagalog Quotes – Inggit Quotes


“Tado” Jimenez Quotes Collections Online


Mga Patama sa mga Nagmamahal the Best Tagalog love quotes for you


Top 10 Best Tagalog Friendship Quotes and Sayings | mrbolero


“BAHAY KUBO HUGOT”


RE: Mutton Pies (frankie241)


Patama tagalog quotes – Move On Quotes