Vortónleikar Fóstbræðra 2015
Karlakórinn Fóstbræður heldur sína 99. vortónleika í Norðurljósum Hörpu dagana 28., 29. og 30. apríl og 2. maí. Allir tónleikarnir í apríl hefjast kl. 20:00 en tónleikarnir 2. maí eru kl. 15:00. Áætluð lengd hverra tónleika er ein og hálf klukkustund.
Efnisskrá þessara fyrstu vortónleika Fóstbræðra í Hörpu ber þess merki að kórinn heldur í söngferð til Þýskalands, Frakklands og Sviss að aflokinni tónleikaröðinni. Flutt verða verk eftir Schubert, Poulenc, Sibelius, Alfvén, Hjálmar H. Ragnarsson o.fl. auk íslenskra og erlendra þjóðlaga. Einsöngvari með kórnum að þessu sinni er Auður Gunnarsdóttir, sópran, píanóleikari að venju er Steinunn Birna Ragnarsdóttir og stjórnandi kórsins er sem fyrr Árni Harðarson.
Karlakórinn Fóstbræður er sá karlakór Íslands sem á lengstan samfelldan starfsaldur að baki, en kórinn hefur starfað samfellt frá haustinu 1916, og því er hér um að ræða kjörið tækifæri fyrir alla tónlistarunnendur til þess að sjá og heyra karlakórssöng sem ómað hefur og þróast í hartnær heila öld