Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Jónas Sigurðsson & Ritvélar framtíðarinnar - Tónleikar

$
0
0

Jónas Sigurðsson stimplaði sig inn í íslenskt tónlistarlíf árið 2007 þegar hann gaf út sína fyrstu sólóplötu, Þar sem malbikið svífur mun ég dansa. Áður hafði hann þó vakið athygli landsmanna með hljómsveitinni Sólstrandargæjunum sem gerði það gott á tíunda áratugnum með slögurum sem enn lifa góðu lífi.

Önnur breiðskífa Jónasar kom út árið 2010 og ber nafnið Allt er eitthvað. Hana vann Jónas í samstarfi við hljómsveit sína Ritvélar framtíðarinnar, en saman hafa þau getið sér gott orð fyrir líflega og kröftuga sviðsframkomu og hafa komið fram víða síðustu ár. Lagið Hamingjan er hér er af þeirri plötu en það hlaut titilinn lag ársins á íslensku tónlistarverðlaununum árið 2011.

Í október 2012 gaf Jónas út sína þriðju plötu en hún var unnin í samstarfi við Lúðrasveit Þorlákshafnar og er þematengd plata. Þar leitar Jónas í upprunann sinn í sjávarþorpinu Þorlákshöfn og er efniviður sköpunarinnar hafið, fólkið sem býr við það og samfélagið sem það í býr til. Jónas og Lúðrasveit Þorlákshafnar héldu þrenna útgáfutónleika í Reiðhöllinni í Þorlákshöfn í október 2012 og fluttu svo plötuna aftur í heild sinni ásamt eldri lögum Jónasar á tvennum tónleikum í Fjarðarborg á Borgarfirði eystri í aðdraganda Bræðslunnar 2013.

Sumarið 2013 var Jónas einn af áhafnarmeðlimum Húna II og hélt 16 tónleika ásamt fríðu föruneyti í jafnmörgum höfnum þegar Húni II sigldi hringinn í kringum landið á þremur vikum og fengu landsmenn að fylgjast með því ævintýri í sjónvarpsþáttunum Áhöfnin á Húna.

Jónas er einnig í hljómsveitinni Dröngum ásamt Mugison og Ómari Guðjóns en samnefnd plata þeirra kom út í október 2013 og fylgdu þeir henni eftir með 30 tónleikum um allt land.

Þessa dagana er Jónas að vinna með leikhóp að uppsetningu á leikritinu Útlenski drengurinn sem frumsýnd verður 15. nóvember, en þar er tónlistin og hljóðheimurinn í höndum Jónasar.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.