Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Maríus Ziska og Svavar Knútur - Litli Íslandstúrinn 2014

Maríus Ziska og Svavar Knútur á “Litla Íslandstúrnum 2014” 

Færeyingurinn Maríus Ziska er staddur hér á landi um þessar mundir að leggja loka hönd á nýja plötu sem koma mun út í mars á nærsta ári. Maríus er án vafa einn efnilegasti tónlistarmaðurinn í Færeyjum um þessar mundir. Ferill hans hefur verið jafn og þéttur og er nú svo komið að flestir eru farnir að spá honum svipuðum ferli og Eivör Pálsdóttir hefur náð. Enda munu þau og fara saman í Evrópuferð á næsta ári til að fylgja eftir nýjum plötum sínum sem báðar eru hljóðblandaðar hér heima á Íslandi eða eins og þeir segja mixuð. Eivör syngur líka dúett með honum á nýju plötunni.

Maríus hefur áður sent frá sér eina plötu, “Recreation” sem m.a. hefur verið fáanleg hér á landi. Hann kom fram á Airwaives tónlistarhátíðinni núna um helgina og spilaði á nokkrum tónleikum. Hugljúf en kröftug tónlist hans náði að hrífa allflesta þá er á hlýddu. Áður hefur Maríus verið tvisvar á Airwives og komið fram á nokkrum stöðum hér heima, þannig að hann á sér orðið smá orðspor hér heima.

Svavar Knút þarf varla að kynna fyrir landanum, hann er einn okkar fremsti vísnasöngvari. Að auki hefur hann að undanförnu verið að vekja athyggli fyrir ýmis önnur mál. 

Svavar og Maríus eru ágætis félagar og hafa m.a. tekið upp eitt lag saman, “Tokan” heitir það og verður það á nýju plötunni hans Maríusar. 

Báðir eru þeir félagar í góðu formi um þessar mundir, Svavar nýkomin af túr um heiminn og Maríus kemur heitur úr upptökum og miklu spileríi í Færeyjum þar sem stjarna hans skín skært.

“Litli Íslandstúrinn 2014”

verður á eftirtöldum stöðum:

13.Nóv.  Ráin Keflavík. Kl. 21.00
14.Nóv.  Bæjarbíó Hafnarfirði. Kl 21.00
15.Nóv.  Græni Hatturinn Akureyri. Kl. 22.00
16.Nóv.  Vitakaffi Akranesi. Kl. 21.00

Miðaverð er 2000kr. og er miðasala á midi.is. og við hurð. 



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Re:Mutton Pies (lleechef)


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


Sapos para colorear


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


INUMAN QUOTES


Girasoles para colorear