Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Hljóðön - Samhljómur 16 strengja - Tónleikar

$
0
0

Sunnudaginn 30. nóvember kl. 20 kemur Strengjakvartettinn Siggi fram á tónleikum tónleikaraðarinnar Hljóðön í Hafnarborg. Á efnisskrá eru verk eftir Giacinto Scelsi, Naomi Pinnock, Atla Heimi Sveinsson og Unu Sveinbjarnardóttur þar sem kvartettforminu er velt fyrir sér og sameining hljóðfæranna fjögurra í einn hljóðheim eru hugleidd.

Strengjakvartettinn Siggi kom fyrst fram á tónleikum samnorrænu tónlistarhátíðarinnar UNM sem haldin var árið 2012. Þar strauk kvartettinn strengi, jafnt sem statíf og hljóðfærabúka við góðan orðstír. Hópurinn er skipaður Unu Sveinbjarnardóttur og Helgu Þóru Björgvinsdóttur, fiðluleikurum, Þórunni Ósk Marínósdóttur, víóluleikara og Sigurði Bjarka Gunnarssyni, sellóleikara.

Hljóðön er tónleikaröð tileinkuð tónlist 20. og 21. aldar þar sem hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir. Nafn tónleikaraðarinnar skírskotar til smæstu merkingargreinandi hljóðeiningar í hljóðkerfi tungumála, grunneiningar sem púsla má ólíkt saman svo úr verði tilraun til merkingar. Hafnarborg efnir hér til tónleikaraðar þar sem ætlunin er að kynna ólík verk samtímatónskálda úr fremstu röð. Í forgrunni verða verk sem fá best notið sín við þær aðstæður og miklu nánd sem býðst í sal Hafnarborgar og telja má sérstakan í flóru tónlistarsala á höfuðborgarsvæðinu. Tónleikaröðin er styrkt af tónlistarsjóði mennta- og menningarmálaráðuneytis og tónlistarsjóði Ernst von Siemens. Listrænn stjórnandi Hljóðanar er Þráinn Hjálmarsson.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tropa Quotes


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


Tagalog Love Quotes – Nagmamahal


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Long distances monthsary message tagalog


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.