Stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjörgynjar til styrktar BUGL og líknarsjóði Fjörgynjar verða haldnir í tólfta sinn þann 13. nóvember næstkomandi. Að venju verður glæsilegur hópur tónlistarfólks og umgjörðin falleg í einni stærstu kirkju landsins Grafarvogskirkju, sem prýdd er einstaklega fallegum altarisglugga eftir Leif Breiðfjörð.
Þessir einstöku stórtónleikar eru í hugum fjölmargra orðinn ómissandi hluti af menningarlífi haustsins og upptaktur að jólastemmingu desembermánaðar. Áheyrendur hafa vanist því að einungis framúrskarandi tónlistarmenn stígi á svið til að slá upp glæsilegri tónlistarveislu ásamt stórum hópi Lionsfélaga úr Lionsklúbbunum Fjörgyn og Fold sem sjá til þess að allt gangi vel fyrir sig.
Niðurstaðan verður töfrum gædd kvöldstund sem yljar áheyrendum samtímis sem þeir styðja gott starf á Barna- og unglingageðdeild LSH.
Tónlistafólk í ár eru m.a. :
Friðrik Ómar Matti og Jógvan, Páll Rósinkranz og Margrét Eir, KK, Gissur Páll, Regína Ósk, Raggi Bjarna, Bergþór Pálsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðrún Árný Karlsdóttir, Kristján Jóhannsson, Karlakór Reykjavíkur
Undirleikarar: Jónas Þórir, Þorgeir Ástvaldsson og Óskar Magnússon
Kynnir er Gísli Einarsson