Meiri Mozart
Píanókonsertinn K. 466 og fertugasta sinfónían eftir Mozart eiga það sammerkt að hafa notið gífurlegra vinsælda og aðdáunar tónleikagesta og flytjenda allt frá upphafi. Píanókonsertinn er kraft- mikill og ljóðrænn í senn, saminn í Vín 1785 og frumfluttur af tónskáldinu aðeins degi eftir að verkið var fullgert. Sinfónía nr. 40 í g-moll er meðal þriggja síðustu sinfónía Mozarts og því andstæða snemmbæru sinfóníunnar nr. 32 í G-dúr, sem svipar til ítalsks forleiks. Úkraínska tónskáldið Valentin Silvestrov samdi Sendiboðann til minningar um eiginkonu sína en tónlistin er sveipuð klæðum 18. aldar og kallast með lágstemmdum hætti á við tónlist Mozarts.
Píanóleikarinn Shai Wosner nýtur alþjóðlegrar hylli fyrir listfengi og framúrskarandi túlkun. Hann leikur með öllum helstu hljómsveitum Evrópu og Ameríku og debúteraði með Vínarfílharmóníunni í Salzburg á 250 ára fæðingarafmæli Mozarts.
Olari Elts varð í fyrsta sæti í Alþjóðlegu Sibeliusar-hljómsveitarstjórakeppninni í Helsinki árið 2000. Hann var aðal- hljómsveitarstjóri Lettnesku þjóðarhljómsveitarinnar og aðalgestastjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Helsinki og Sinfóníuhljómsveitar Eistlands.