Jazzklúbburinn Múlinn er að hefja starfssemi sína á nýjan leik eftir sumarfrí og býður upp á spennandi og skemmtilega tónleika með sönkonunni Sigríði Thorlacius sem opnunaratriði. Söngkonan kemur fram ásamt Múla sextettinum sem skipaður er Birki Frey Matthíassyni sem leikur á trompet, saxófónleikurunum Hauki Gröndal og Ólafi Jónssyni, píanóleikaranum Eyþóri Gunnarssyni, Þorgrími Jónssyni sem leikur á bassa og trommuleikaranum Scott McLemore. Leikin verða tónlist frá 5. áratugnum í anda Al Cohn, Zott Sims og fleirum ásamt útsetningum af ýmsum jazzperlum með Sigríði sem vart þarf að kynna enda ein ástsælasta sönkona þjóðarinnar.
↧