
Föstudagurinn 26. júlí kl. 20:00
Opnunartónleikar Reykholtshátíðar – Bristol Bach Choir
Opnunartónleikar Reykholtshátíðar verða helgaðir kórsöng. Hinn þekkti enski kór Bristol Bach Choir sækir Reykholtshátíð heim undir stjórn hins unga Christopher Finch sem vakið hefur mikla athygli í heimalandi sínu undanfarið fyrir störf sín. Efnisskráin er afar fjölbreytt og samanstendur af meistaraverkum m.a. eftir Schütz, Byrd, Tallis, Bach, Purcell og Tavener. Einnig mun orgelleikari kórsins, Nigel Nash, leika tvö verk á orgel kirkjunnar.
Laugardagurinn 27. júlí kl. 15:00
Söngtónleikar með kammerívafi
Gissur Pál Gissurarson, tenórsöngvara þarf vart að kynna en hann hefur sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna undanfarin ár. Hann verður með afar skemmtilega og fjölbreytta dagskrá með kammerívafi þar sem hann mun syngja við meðleik Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara ásamt strengjaleikurum Reykholtshátíðar. Á dagskrá verða m.a. íslensk einsöngslög í glænýjum útsetningum eftir Þórð Magnússon fyrir tenór og píanótríó.
Laugardagurinn 27. júlí kl. 20:00
B-in þrjú: Britten, Beethoven, Bach
Reykholtshátíð heiðrar 100 ára afmæli Benjamin Britten, eins fremsta tónskálds Englendinga, með flutningi á sjaldheyrðu en afar fallegu verki fyrir píanó, fiðlu og lágfiðlu. Helga Þóra og Anna Guðný leika hina undurfögru fiðlusónötu nr. 1 eftir Beethoven. Tónleikunum lýkur svo á Goldberg tilbrigðunum eftir Bach, einni mögnuðustu tónsmíð vestrænnar tónlistarsögu, í umritun fyrir strengjatríó í flutningi þeirra Ara Þórs, Ásdísar og Sigurgeirs.
Sunnudagur 28. júlí kl. 16:00
Lokatónleikar Reykholtshátíðar
Glæsilegir og fjölbreyttir lokatónleikar hátíðarinnar þar sem áheyrendur fá að kynnast hinu íhugla og dúpa tónmáli Jóns Nordals í strengjakvartettnum Frá draumi til draums. Gissur Páll stígur svo á svið og færir okkur nokkrar af þekktustu aríum Verdi í útsetningu fyrir strengjakvintett í tilefni þess að 200 ár eru liðin frá frá fæðingu tónskáldsins. Reykholtshátíð lýkur svo á einu af meistaraverkum kammertónbókmenntanna, píanókvartettnum í g-moll eftir J. Brahms