Image may be NSFW.
Clik here to view.
Clik here to view.

Upp rís úr rafinu.
Þann 12. júlí klukkan 20:00 mun rafið flæða yfir Kaldalón. Í rafinu leynast margar furðuverur sem gestum gefst nú tækifæri til að hlýða á. Verurnar verða tamdar af sex ungmennum, þeim Árna Guðjónssyni, Bergrúnu Snæbjörnsdóttur, Finni Karlssyni, Gunnari Gunnsteinssyni, Halldóri Smárasyni og Hauki Þór Harðarsyni.
Þau munu beita ýmsum mismunandi aðferðum til að temja skepnur rafsins svo þær leiki um skyn áheyrandans, ýmist í samhljómi með akústískum hljóðfærum eða syngjandi einar síns liðs.