Á starfsárinu halda hljómsveitir um víða veröld upp á 150 ára fæðingarafmæli Richards Strauss og Jeans Sibelius. Fyrir utan fjölmargar óperur sínar er Strauss þekktastur fyrir tónaljóðin og er Macbeth sem byggir á leikriti Shakespe- ares hið fyrsta í röðinni.
Sibelius sækir efnivið sinn í sagnabálk- inn Kalevala og dregur upp myndir úr lífi hins hvatvísa Kullervos en verkið er hið fyrsta í röð tólf tónaljóða sem byggð eru á finnsku þjóðargerseminni. Petri Sakari er hér á heimavelli en á 28 ára löngum ferli sínum sem aðal- og gestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur hann stjórnað helstu hljómsveitarverkum Sibeliusar. Segja má að hljóðritanir hans á öllum sjö sinfóníum og fleiri verkum tónskáldsins fyrir Naxos-útgáfuna hafi brotið blað í sögu hljómsveitarinnar og aflað henni alþjóðlegrar athygli.
Jorma Hynninen er einn ástsælasti söngvari Finna og hefur á glæstum ferli sungið í helstu óperuhúsum og tón- leikasölum heimsbyggðarinnar. Þóra Einarsdóttir sópransöngkona skipar stóran sess í íslensku tónlistarlífi og er stórbrotin túlkun hennar á Ragnheiði í samnefndri óperu Gunnars Þórðarsonar mörgum enn í fersku minni.
Karlakórinn Fóstbræður og Karlakór Reykjavíkur sameina krafta sína í tóna- ljóði Sibeliusar og er tilhlökkunarefni að heyra volduga raust þeirra í Eldborg Hörpu.