Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Todmobile og Steve Hackett (Genesis) -

$
0
0

Todmobile og Steve Hackett (Genesis)

Betra en nokkuð annað - bestu lög Genesis og Todmobile.

Glæsilegir tónleikar þar sem Todmobile og Steve Hackett, gítarleikari Genesis leiða saman hesta sína ásamt strengjasveit, blásurum og kór.

Genesis er án efa ein áhrifamesta og vinsælasta rokksveit síðustu aldar og hafa plötur þeirra selst i meira en 130 milljónum eintaka. Hljómsveitin var stofnuð árið 1967 af Peter Gabriel, Tony Banks og Mike Rutherford en þeir Phil Collins og Steve Hackett gengu til liðs við sveitina árið 1970. Flutt verða lög frá gullaldartíma Genesis á áttunda áratugnum af plötunum Nursery Cryme, Foxtrot, Selling England By The Pound, The Lamb Lies Down On Broadway og A Trick Of The Tail. Um er að ræða gullmola eins og Firth of Fifth,  Dance On A Volcano, Squonk, Supper's Ready, I Know What I Like og helstu smellina frá níunda áratugnum, t.d Follow You Follow Me, Abacab og Land of Confusion. Pöddulagið, Brúðkaupslagið, Stelpurokk, Spiladósalagið o.fl verða á sínum stað og mun Hackett frumflytja nýtt lag með Todmobile sem hann samdi með sveitinni. Hackett hefur haldið merkjum Genesis á lofti með Genesis Revisited sem hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár. Eddie Van Halen, Alex Lifeson (Rush) og Brian May (Queen) hafa allir sagt Steve Hackett hafa haft mikil áhrif á sig sem gítarleikara. Steve Hackett var vígður inn í Rock'n'Roll Hall Of Fame árið 2010 ásamt félögum sínum í Genesis.

Hér verður engu til sparað en “Rockestra” Todmobile er skipuð meðlimum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Sigurði Flosasyni, Einari Scheving, Gretu Salóme, Ölmu Rut og Ernu Hrönn auk söngvara Hljómeykis.

Meðlimir Todmobile eru: Andrea Gylfadóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eiður Arnarsson, Kjartan Valdemarsson og Ólafur Hólm.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Sapos para colorear


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Girasoles para colorear


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE