
A capella söngflokkur frá Svíþjóð og Finnlandi
Sönghóparnir tveir, The Real Group og Rajaton, hittustu fyrst í Kanada fyrir meira en tíu árum. Síðan þá hafa flokkarnir reglulega komið fram saman, en í hvert sinn sem leiðir þeirra liggja saman virðist sem sérstök orka leysist úr læðingi. Sameinaðir hæfileikar þeirra og kraftur hafa heillað áhorfendur hvarvetna og nú loksins liggur leið þeirra til Íslands. Yfirskrift tónleikanna er LEVELELEVEN, sem er sameiginlegt verkefni sem hóparnir tveir hafa lengi unnið saman að.
Enginn unnandi söngtónlistar má missa af því þegar tveir af fremstu a capella sönghópum heims leiða saman hesta sína í Eldborg í Hörpu.
„Þessi fá ellefu í einkunn.“ (Nigel Tufnel, Spinal Tap)
Söngvarar: Emma Nilsdotter, Katarina Henryson, Anders Edenroth, Morten Vinth, Anders Jalkéus; Essi Wuorela, Virpi Moskari, Tuuli Ikonen, Hannu Lepola, Ahti Paunu and Jussi Chydenius.