
John Grant hefur stimplað sig rækilega inn í íslenskt tónlistarlíf frá því hann kom fyrst fram á Iceland Airwaves hátíðinni 2011.
Hann sendi frá sér sýna aðra breiðskífu „Pale Green Ghosts“ fyrr á þessu ári og hefur hún fengið nánast fullt hús stiga hjá öllum helstu tónlistartímaritum heims.
Sköpunargleði Grants er í hámarki á Pale Green Ghosts, en á plötunni mætir myrk og leiftrandi elektróník flauelsmjúkum ballöðum fyrri plötunnar. Ekki er frá því að áhrif Íslands og íslenskra samstarfsmanna séu nokkuð sterk. Textarnir eru sem fyrr opinskáir, fyndnir og ljúfir - líkt og listamaðurinn sjálfur.
John Grant kemur fram ásamt hljómsveit á Faktorý fimmtudagskvöldið 25. júlí. Ekki missa af þessu tækifæri að sjá þennan einstaka tónlistarmann í litlum og persónulegum tónleikasal.