Clik here to view.

Sinfóníuhjómsveit Íslands
Aðventutónleikar
Fíngerð og áferðafögur frönsk barokktónlist, í anda jóla, hljómar með tónlist Vivaldis og argentínska tónskáldsins Piazzolla. Hann samdi tónverk sitt Árstíðirnar fjórar í Buenos Aires sem virðingarvott við borgina, tangóinn og Vivaldi. Hin einstaka og hrífandi Mozart-perla, Exsultate, jubilate, ásamt Bach-kantötunni Fagnið fyrir guði í öllum löndum í meðförum Hallveigar Rúnarsdóttur, konungleg flugeldatónlist eftir Händel og Parísarsinfónía Mozarts skapa sannkallaða hátíðarstemningu í upphafi aðventu.
Matthew Halls er í framvarðasveit ungra breskra stjórnenda og hljómborðsleikara. Hann er reglulegur gestastjórnandi hjá hljómsveitum sem sérhæfa sig í tónlist fyrri tíma en stjórnar jafnframt stærri hljómsveitum í virtustu tónleikasölum og listamiðstöðvum heims. Halls er stofnandi hljómsveitarinnar Retrospect Ensemble sem hefur hlotið mikið lof fyrir flutning og túlkun á tónlist sem spannar fjórar aldir.
Hallveig Rúnarsdóttir stundaði nám við Guildhall-tónlistarskólann í London og útskrifaðist þaðan með láði. Hún hefur komið fram sem einsöngvari bæði heima og erlendis, meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Þetta er í annað sinn sem Matthew Halls stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á aðventutónleikum en síðast stýrði hann flutningi á Messíasi árið 2011 við mikla hrifningu áheyrenda.
Antonio Vivaldi
Veturinn úr Árstíðunum
Marc-Antoine Charpentier
Nótt úr Söng á fæðingarhátíð herrans
Úr Jólasöngvum fyrir hljóðfæri
Johann Sebastian Bach
Fagnið fyrir guði í öllum löndum
Astor Piazzolla
Veturinn úr Árstíðunum fjórum í Buenos Aires
Georg Friedrich Händel
Tónlist fyrir hina konunglegu flugelda
Wolfgang Amadeus Mozart
Exsultate, jubilate Sinfónía nr. 31, Parísarsinfónían
Matthew Halls
hljómsveitarstjóri
Hallveig Rúnarsdóttir
einsöngvari