Hljómsveitin Nýdönsk heldur sína árlegu Hörputónleika í Eldborg, laugardaginn 13.sept n.k. Þessi langlífa sveit hefur sent frá sér á annan tug hljómplatna og vinsæl lög sveitarinnar skipta tugum; Horfðu til himins, Alelda, Fram á nótt, Flugvélar og öll hin.
Nýdanskir bjóða upp á fjölbreytta tónlistarveislu sem inniheldur það vinsælasta, frumlegasta, fallegasta og síðast en ekki síst, það nýjasta, frá farsælum ferli.
Hljómsveitin fór til Berlínar í marsmánuði og hljóðritaði þar fimm ný lög sem saman hafa hlotið nafnið Diskó Berlín, fyrri hluti. Upptökur fóru fram í Austur-Berlín og undu félagarnir sér vel við tónlistarsköpun og schnitzelát.
Þeir sem kaupa miða á tónnleikana munu eignast rafræna útgáfu hljómplötunnar Diskó Berlín, fyrri hluti sem kemur út í heild sinni í haust. Tengill á lögin verður sendur með staðfestingapósti í kjölfar miðakaupanna og tengill fylgir með þeim miður sem keyptir eru í miðasölunni.