
Múrinn milli klassíska heimsins og dansi götunnar rofinn
Í Red Bull Flying Bach sannar goðsagnakenndi breikdanshópurinn Flying Steps og óperustjórnandinn Christoph Hagel hversu vel breikdans og barokktónlist þýska tónskáldsins J. S. Bachs eiga saman. Sjáið kröftugan breikdans knúinn áfram af taktföstum píanóhljómum Bachs.
Fullkomin blanda andstæðna!
Í Red Bull Flying Bach mætast klassísk tónlist og breikdans í stórkostlegri sýningu sem farið hefur sigurför um heiminn undanfarin tvö ár. Red Bull Flying Bach hefur hrifið gagnrýnendur og áhorfendur fyrir fullum dyrum í glæsilegustu sýningarhöllum heims og munu þeir koma fram í Eldborgarsal Hörpu.
Sýningin hlaut meðal annars hin virtu ECHO Klassik verðlaun og frá því að Flying Steps tók til starfa árið 1993 hafa þeir fjórum sinnum orðið heimsmeistarar í breikdansi. Það er ekki að ástæðulausu að ávallt er uppselt á sýningum þeirra og á einni sýningunni seldust allir miðar á innan við 50 mínútum. Nú munu þessir einstöku listamenn loksins heimsækja Ísland og verða í Hörpu þann 14. júní næstkomandi.
Skapandi flutningur þeirra myndgerir og endurlífgar „Vel stillt hljómborðið“ Bachs „Das Wohltemperierte Klavier“ sem færir saman klassíska tónlist og götumenningu unga fólksins. Nótu fyrir nótu, skref fyrir skref hljóma píanó, sembal og raftónar undir heljarstökkum, kröftugum danssporum og hvers kyns hringsnúnginum. Í heildina er hér um að ræða ævintýralega upplifun sem aðdáendur breikdans og klassískrar tónlistar mega ekki láta framhjá sér fara.