Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Eistnaflug 2013 - 11. - 13. júlí 2013

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Mynd

Eistnaflug 2013 verður haldið í níunda sinn í sumar.
Hátíðin verður dagana 11.-13. Júlí í Egilsbúð Neskaupstað.

Allar bestu rokkhljómsveitir landsins ætla að mæta og trylla mannskapinn og samanlaggt verða 42 hljómsveitir sem spila í sumar þar af 7 erlendar. Bestu hljóð og ljósamenn landsins halda utan um tæknimál svo tónleikarnir verða rosalegir. Eistnaflug byrjar miðvikudaginn 10. júlí kl.19:00 með barnatónleikum í Egilsbúð. Þar ætla hljómsveitirnar Skálmöld, Sólstafir og Dimma að spila fyrir krakkana. En svo byrjar dagsskráin á fimmtudeginum 11. júlí og hættum við ekkert fyrr en að Dj Töfri ýtir á stopp á sunnudagsmorgni.

Allar upplýsingar eru á heimasíðunni okkar www.eistnaflug.is  og svo á facebook. Sjáumst hress og ekkert helvítis rugl.

Tjaldsvæði er 1.000 kr fyrir alla dagana og þú getur valið um partý eða rólegt tjaldsvæði.

18 ára aldurstakmark.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696