
Rauðasandur Festival er fjölskylduvæn tónlistarhátíð sem nú er haldin í þriðja sinn í náttúruperlunni Rauðasandi á Vestfjörðum. Umhverfið er sláandi fagurt á þessum afvikna stað og er tónlistin í takt við það. Lögð er áhersla á popp, folk og reggae tónlist.
Meðal listamanna sem koma fram í ár eru Prinspóló, Borko, Mr Silla, Samaris, Snorri Helgason, Ylja ásamt fleiri góðum.
Yoga á sandinum, gönguferðir á söguslóðir og sandkastalakeppni eru dæmi um aðrar uppákomur á hátíðinni.
Rauðasandur Festival er haldin á býlinu Melanesi, þar sem nýlega er hafin uppbygging á ferðaþjónustu. Tjaldsvæði og öll aðstaða er til fyrirmyndar og ótrúlegar náttúruperlur og sögufrægir staðir eru innan göngufæris. Næsti bær er Patreksfjörður en þangað er hægt að sækja sundlaug, kaffihús, verslun og þjónustu en einnig er kaffihús á næsta bæ við Melanes á Rauðasandi.