
Sinfóníuhjómsveit Íslands
Vínartónleikar 2014
Glæsileiki og glaðværð ríkir á árlegum Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem mörgum þykir ómissandi upphaf á nýju ári. Tónleikarnir hafa til margra ára verið allra vinsælustu tónleikar hljóm sveitarinnar.
Að þessu sinni hljómar sígild Vínartónlist undir stjórn Peters Guth sem er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur margsinnis stjórnað og leikið á fjörugum Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar, síðast í janúar 2013. Guth hefur skapað sér nafn sem einn fremsti flytjandi heims á tónlist Strauss-feðga og annarri Vínartónlist og er eftirsóttur gestastjórnandi sem hvarvetna hefur hlotið lof fyrir líflega framkomu sína og túlkun.
Einsöngvarar á Vínartónleikunum eru Hanna Dóra Sturludóttir og Gissur Páll Gissurarson. Hanna Dóra Sturludóttir hefur margsinnis sungið með Sinfóníuhljómsveitinni við frábærar undirtektir. Hún hefur sungið með Íslensku óperunni og starfað um árabil í stærstu óperuhúsum Þýskalands og víðar. Gissur Páll hefur komið víða fram sem einsöngvari, meðal annars með Sinfóníuhljómsveitinni og tekið þátt í óperuuppfærslum hér heima og erlendis. Hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2013 fyrir túlkun sína á Rodolfo í La Boheme.
Peter Guth
hljómsveitarstjóri
Hanna Dóra Sturludóttir og Gissur Páll Gissurarson
einsöngvarar