
Sinfóníuhjómsveit Íslands
Dvorák og Strauss
Pólverjinn Witold Lutoslawski var eitt merkasta og áhrifamesta tónskáld síðustu aldar, en í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu hans. Það á því vel við að landi hans, hljómsveitarstjórinn Michal Dworzynski, stjórni hinni mögnuðu Partítu fyrir fiðlu og hljómsveit, þar sem Sif Margrét Tulinius leikur einleik.
Dworzynski vakti heimsathygli árið 2006 þegar hann bar sigur úr býtum í Donnatella-Flick hljómsveitarstjórakeppninni og hefur allar götur síðan verið einn eftirsóttasti stjórnandi af yngri kynslóð hljómsveitarstjóra. Hann hefur tvívegis áður stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum og vakið mikla hrifningu, meðal annars á lokatónleikum hljómsveitarinnar í Háskólabíói í apríl 2011.
Sif Margrét Tulinius gegnir stöðu annars konsertmeistara við Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur um árabil verið á meðal fremstu hljóðfæraleikara landsins sem einleikari, í flutningi kammertónlistar, samtímatónlistar sem og flutningi á eldri tónlist.
Frásögnin af Don Juan hefur verið mörgum tónskáldum innblástur til tónsmíða í gegnum tíðina. Tónaljóð Richards Strauss um flagarann víðfræga er, líkt og Don Juan sjálfur, fullt af andstæðum og tilfinningum sem gera miklar kröfur til hljómsveitarinnar.
Áttunda sinfónía tékkneska tónskáldsins Antonins Dvorák er innblásin af tónlistararfi Bóhemíu. Hér er málað í björtum litum og gleðin ósvikin.
Richard Strauss
Don Juan
Witold Lutoslawski
Partita
Jónas Tómasson
Leikleikur
Antonin Dvorák
Sinfónía nr. 8
Michal Dworzynski
hljómsveitarstjóri
Sif Margrét Tulinius
einleikari