Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Austrænir tónar - Gul - tónleikaröð

$
0
0
Mynd

Sinfóníuhjómsveit Íslands
Austrænir tónar

Kínverskt þríeyki er í aðalhlutverki á þessum tónleikum, einleikari, hljómsveitarstjóri og tónskáld. Fiðluleikarinn Li Chuanyun var undrabarn og vann fyrst til verðlauna í Beijing 1985 aðeins fimm ára gamall. Chuanyun er meðal eftirsóttustu einleikara veraldar og stundum kallaður „Lang Lang fiðlunnar“. Mikil eftirvænting ríkir að heyra Chuanyun flytja Fiðlukonsert Arams Khatsjatúrjan sem frumfluttur var árið 1940 og er einn vinsælasti konsert sinnar tegundar.

Kínversk-bandaríska tónskáldið Zhou Long sækir efni verksins The Rhyme of Taigu í forna menningu fósturlands síns Kína. Verkið er gífurlega kraftmikið með sólóklarínettu og slagverk í burðarhlutverkum. Eins sækir Áskell Másson í menningararf heimalands síns í hljómsveitarverkinu Frón en í því má greina elstu laglínur sem varðveist hafa á Íslandi.

Þá hljómar svíta Florents Schmitt um harmleik Salóme sem Stravinskíj gaf hæstu einkunn. Í ársbyrjun 1912 skrifaði Ígor Stravinskíj bréf til tónskáldsins Florents Schmitt og sagði meðal annars: „Ég verð að viðurkenna að langt er síðan tónverk hefur glatt mig eins mikið og snilldarverkið Harmleikur Salóme.“

Lan Shui er tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar í Singapúr, aðalstjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Kaupmannahöfn og gestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Álaborgar. Hann stjórnar nú Sinfóníuhljómsveit Íslands eftir nokkurra ára hlé.

Áskell Másson
Frón
Aram Khatsjatúrjan
Fiðlukonsert
Zhou Long
The Rhyme of Taigu
Florent Schmitt 
Harmleikur Salóme – svíta
Lan Shui
hljómsveitarstjóri
Li Chuanyun
einleikari


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.