
Tónsnillingar morgundagsins í Kaldalóni Hörpu
sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl kl. 20.00
Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari
Hafdís Vigfúsdóttir lauk burtfararprófi í flautuleik frá Tónlistarskóla Kópavogs og BA-prófi frá Listaháskóla Íslands. Hún stundaði framhaldsnám við Konservatoríið í Rueil-Malmaison í Frakklandi og Konunglega Konservatoríið í Den Haag í Hollandi og lauk meistaraprófi frá Norges Musikkhøgskole 2013. Aðalkennarar Hafdísar voru Guðrún Birgisdóttir, Martial Nardeau, Philippe Pierlot, Juliette Hurel, Per Flemström og Tom Ottar Andreassen. Árið 2009 hlaut Hafdís önnur verðlaun í Alþjóðlegri tónlistarkeppni „Le Parnasse” í París. Hún hefur komið fram sem einleikari með Ungfóníu, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Kristján Karl Bragason nam píanóleik við Tónlistarskólana á Dalvík, Akureyri og Reykjavík. Þá hélt hann utan og nam í Stuttgart, við Konservatoríin í Versölum og Rueil-Malmaison í Frakklandi, og lauk meistaraprófi í píanóleik frá Konservatoríinu í Maastricht í Hollandi árið 2012. Aðalkennarar Kristjáns gegnum tíðina hafa verið Marek Podhajski, Halldór Haraldsson, Edda Erlendsdóttir, Pascal Amoyel og Katia Veekmans. Kristján hlaut fyrstu verðlaun í fyrstu píanókeppni EPTA á Íslandi árið 2000. Hann hefur í tvígang hlotið styrk úr minningarsjóði um Birgi Einarson.
Eftir átta ára búsetu erlendis við nám og störf eru Hafdís og Kristján Karl nú búsett í Reykjavík þar sem þau starfa að list sinni og við kennslu. Þau hafa leikið saman sem dúó frá árinu 2006 og komið fram í tónleikaröðum víðs vegar um landið, m.a. í Sigurjónssafni, Gljúfrasteini, Mývatni, Seyðisfirði og Stykkishólmi. Frá árinu 2010 hafa þau staðið fyrir tónlistarhátíðinni Bergmál á Dalvík, heimabæ Kristjáns, í samvinnu við Grím Helgason klarínettuleikara og ráðið á þriðja tug tónlistarfólks til samstarfs
Efnisskrá:
Beethoven: Serenade op. 41 fyrir flautu og píanó
Taffanel: Grand Fantaisie sur Mignon fyrir flautu og píanó
- H L É -
Sigfrid Karg-Elert: Chaconne no. 30 op. 107 fyrir flautu
Þorkell Sigurbjörnsson: Siciliano úr Columbine fyrir flautu og píanó
César Franck: Sónata í A-dúr fyrir flautu og píanó