
Íslenski flautukórinn og slagverksdúóið Duo Harpverk sameina krafta sína í óvenjulegum hljóðheimi á tónleikum þar sem kannaðar verða ýmsar hliðar hljóðfæranna og þeirra samsetninga sem þau bjóða uppá.
Efnisskrá:
Liadov: Muzikalnaya tabakerka Op. 32 fyrir flautukór, hörpu, og klukkuspil, frumflutningur á Íslandi
Atli Heimir Sveinsson: Duo fyrir hörpu og slagverk, frumflutningur
Barbara Kaszuba: Leirhnjúkur fyrir flautukór frumflutningur
Hlé
Tan Dun: In Distance fyrir piccolo-flautu, hörpu og bassatrommu
Gunnar Andreas Kristinsson: Nitt verk fyrir flautukór frumflutningur
Jesper Pedersen: Nitt verk fyrir flautukór hörpu og slagverk frumflutningur
Danska tónskáldið Jesper Pedersen, sem gert hefur Ísland að starfsvettvangi sínum mun afhjúpa glænýtt verk fyrir flautuleikarana tólf og Duo Harpverk þar sem innblástur er sóttur í andardráttinn, hina ómeðvituðu, áreynslulausu og sleitulausu undirstöðu lífsins. Verk eftir Gunnar Andreas Kristinsson mun einnig heyrast í fyrsta sinn. Gunnar Andreas var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013 fyrir tónverk ársins í sígildri- og samtímatónlist og fyrr á árinu talaði tónlistargagnrýnandi The Times (Uk) um ferskt og óheft ímyndurnarafl tónskáldsins.
Verkið Leirhnjúkur eftir Barböru Kaszuba er sérstaklega samið fyrir Íslenska flautukórinn í tilefni að tónleikunum í Ásmundarsafni. Barbara mun vinna með monochrome eða eintóna litaskala eins og hún hefur verið að sökkva sér ofan í undanfarin ár. Áður hefur Barbara sótt sér innblástur í jarðhita Íslands en tónverk hennar fyrir einleiksflautu heitir einmitt Geysir.
Íslenska flautukórinn skipa:
Áshildur Haraldsdóttir
Berglind Stefánsdóttir
Björn Davíð Kristjánsson
Dagný Marinósdóttir
Emilía Rós Sigfúsdóttir
Karen Erla Karólínudóttir
Kristrún Helga Björnsdóttir
Magnea Árnadóttir
Margrét Stefánsdóttir
Maria Cederborg
Pamela De Sensi
Petrea Óskarsdóttir