Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Rýmin og skáldin I - Tríó Sírajón og Ingibjörg Guðjónsdóttir

$
0
0
Mynd

Titill tónleika Tríó Sírajóns vísar til ljóðs Jónasar Hallgrímssonar, Gunnarshólma, sem Þórður Magnússon tónskáld hefur samið tónlist við. Verkið er skrifað fyrir fiðlu, klarínett, píanó og sópran, en það er Ingibjörg Guðjónsdóttir sem fer með sönghlutverkið.

Efnisskrá
Igor Stravinsky:  3 lög fyrir einleiks klarinett
Igor Stravinsky:  Saga dátans - svíta
Leifur Þórainsson:  Áfangar
Þórður Magnússon: Gunnarshólmi ( frumflutningur )

Tónleikarnir hefjast á fjarlægum og dulúðugum tónum klarínettsins í einleiksverki Stravinskys frá dvalarárum hans í Sviss þegar heimstyrjöldin fyrri geisaði. Hann hafði hrist eftirminnilega upp í hinum vestræna tónlistarheimi nokkrum árum áður með Vorblótinu og sneri sér eftir það að verkum fyrir smærri hljóðfærahópa þar á meðal Sögu dátans fyrir sjö hljóðfæraleikara, sögumann og dansara.  Verkið fjallar um ungan hermann og kölska sem lofar unga manninum gulli og grænum skógum í skiptum fyrir fiðluna hans. Stravinsky gerði síðar svítu úr sviðsverkinu fyrir fiðlu, klarínett og píanó og verður sú gerð verksins leikin á tónleikunum. Í þessum tveimur verkum Stravinskys má heyra fyrstu tilraunir hans með jasskennda tónlist og ragtime.

Leifur Þórarinsson hefði orðið áttræður í ár og því við hæfi að minnast þessa merkilega tónskálds á þeim tímamótum, en hann var einn áhrifamesti tónhöfundur Íslendinga á síðustu öld. Tríó Sírajón leikur verkið Áfangar eftir Leif  á þessum tónleikum en það var samið undir áhrifum frá samnefndri mynd eftir náinn vin hans, Kristján Davíðsson listmálara og tileinkað honum.

Flytjendur: Tríó Sírajón og Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran
(Tríó Sírajón skipa: Laufey Sigurðardóttir fiðla Einar Jóhannesson klarínett og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanó)


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.