
Á tónleikunum verða flutt tvö verk fyrir bassaflautu og rafhljóð, Flux eftir Huga Guðmundsson og Merula eftir írska tónskáldið Simon Mawhinney. Bæði verkin eru samin fyrir Kolbein Bjarnason og voru frumflutt af honum, Flux í Danmörku 2011 og Merula í Belfast 2012. Hvorugt verkið hefur verið flutt á Íslandi. Rafhljóð beggja verkanna eru unnin upp úr bassaflautuleik Kolbeins.
Hugi og Kolbeinn hafa unnið saman um árabil og Flux er þriðja verkið sem Hugi skrifar að beiðni hans.
Kolbeinn vann í fjögur ár að sköpun Merula með írska tónskáldinu Simon Mawhinney en verkið var frumflutt í Belfast haustið 2012.
Hér er um mjög flókið verk að ræða, sennilega það viðamesta sem hefur verið samið fyrir bassaflautu. Verkið byggist að verulegu leyti á fuglasöng. Upptökur höfundar af söng svartþrasta og mistilþrasta voru umskrifaðar af nákvæmni fyrir bassaflautuna og mynda grunninn bæði í rafhljóðunum og í hinum lifandi flutningi.
Áheyrendur verða umkringdir hátölurum og er óhætt að lofa afar óvenjulegri upplifun í einstökum hljóðheimi ótal bassaflauta.
Hljóðstjórn er í höndum tölvutónlistarmannsins Christopher Haworth og tónskáldsins Simon Mawinney.