Clik here to view.

All Tomorrow's Parties - Iceland
All Tomorrow's Parties á Íslandi kynna með miklu stolti komu hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Nick Cave & The Bad Seeds á ATP Iceland helgina 28.-29, sem haldin verður á gömlu NATO herstöðinni Ásbrú. Nick Cave spilaði síðast á Íslandi árið 2006 en hljómsveitin hans, The Bad Seeds, kom síðast fram á Íslandi árið 1986 þegar Nick Cave heimsótti Ísland í fyrsta sinn. Hann hafði þetta að segja um fyrirhugaða tónleika á ATP Iceland, „uppáhalds tónlistarhátíðin mín í uppáhaldslandinu mínu.“ Tónlistardagskrá hátíðarinnar verður ekki af verri endanum en dagskráin lítur þannig út:
Föstudaginn 28. júní koma fram:
The Fall(UK)
Thee Oh Sees (US)
The Notwist (DE)
Múm
HAM
Apparat Organ Quartet
Ghostigital
Kimono
Æla
Snorri Helgason
Laugardaginn 29. júní koma fram:
Nick Cave & The Bad Seeds (UK)
Chelsea light moving (US) (með forsprakka Sonic Youth, Thurston Moore í fararbroddi)
Deerhoof(US)
Squrl (US) (með leikstjórann Jim Jarmusch fremstan í flokki)
Mugison
Dead skeletons
Hjaltalín
Valgeir Sigurðsson
Amiina
Puzzle Muteson(UK)
Á hátíðarsvæðinu verða tvö svið auk annars konar skipulagðrar dagskrár sem felur meðal annars í sér kvikmyndasýningar, Popppunkt, fótboltamót þar sem hljómsveitir etja kappi við gesti hátíðarinnar o.fl. Á hátíðina verða aðeins seldir fjögur þúsund miðar.
Það eru tvenns konar miðar fáanlegir á hátíðina – með og án gistingu:
Tegund 1 – án gistingar:
Annars vegar er hægt að kaupa miða á hátíðina sem veitir aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar (miðaverð 16.900 kr.) og hins vegar dagspassa á hvorn dag fyrir sig (miðaverð 9.900 kr). Engin gisting er innifalin í þessum miðum.
Tegund 2 – með gistingu:
Miði á hátíðina ásamt herbergi. Takmarkað magn miða er í boði sem fela í sér 2ja nátta gistingu í herbergjum hjá Bed & Breakfast Keflavík sem staðsett er á Ásbrú í göngufjarlægð frá hátíðarsvæðinu. Herbergin hafa aðgang að sameiginlegu eldhúsi (borðbúnaður og tól til eldunar á staðnum). Lín er innifalið í verðinu og því óþarfi að koma með sængur eða svefnpoka.
Tvenns konar pakkar eru í boði sem fela í sér gistingu:
2ja manna - Innifalið í pakkanum eru tveir miðar á hátíðina og herbergi fyrir tvo fyrir föstudags- og laugardagskvöld. Tvö herbergi deila einu baðherbergi; sem annaðhvort hefur sturtu eða bað og auðvitað vask og salerni. Í þessum herbergjum eru tvö aðskilin einstaklingsrúm. Verð fyrir tvo: 69,800 kr (2 miðar og gisting)
4ja manna– Innifalið í pakkanum eru fjórir miðar á hátíðina og herbergi fyrir fjóra fyrir föstudags- og laugardagskvöld. Í þessum pakka eru tvö samliggjandi herbergi sem aðskilin eru með baðherbergi sem annaðhvort hefur sturtu eða bað og auðvitað vask og salerni. Annað herbergið er með einu ,,queen-size”-rúmi sem tveir geta sofið í og hitt með tveimur einstaklingsrúmum. Verð fyrir fjóra: 139,600 kr (4 miðar og gisting)