
Rauðasandur Festival er fjölskylduvæn tónlistar- og upplifunarhátíð sem nú er haldin í fjórða sinn í náttúruperlunni Rauðasandi á Vestfjörðum. Umhverfið er sláandi fagurt á þessum afvikna stað og er tónlistin í takt við það. Lögð er áhersla á popp, folk og reggae tónlist.
Yoga á sandinum, gönguferðir á söguslóðir og sandkastalakeppni eru dæmi um aðrar uppákomur á hátíðinni. Rauðasandur Festival er haldin á býlinu Melanesi. Ótrúlegar náttúruperlur og sögufrægir staðir eru innan göngufæris.
20 ára aldurstakmark nema í fylgd með foreldrum.