Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Mono Town - Tónleikar

$
0
0
Mynd

Það gleður okkur að tilkynna að hljómsveitin Mono Town heldur tvenna útgáfutónleika á Íslandi í tilefni af frumburði sínum „In The Eye Of The Storm“. Tónleikarnir munu fara fram í Gamla Bíói í Reykjavík þann 3. Apríl og á Græna Hattinum á Akureyri þann 12. Apríl.

In The Eye Of The Storm“ er gefin út á vegum Record Records og lendir í verslunum þriðjudaginn 11. Mars á geisladisk og vínyl.

„In The Eye of the Storm“ er frumburður hljómsveitarinnar Mono Town og á augabragði heyrist að hún hefur nostrað við hvert einasta smáatriði á plötunni sem er ákaflega vel samin og útsett. Í grunninn spilar hljómsveitin hljómfagurt og melódískt rokk sem sækir áhrif sín víða. Hljómur plötunnar er fádæma góður og segja má það sama um allan tónlistarflutning sem ekki er framkvæmdur af aukvissum. Radd- og strengjaútsetningar gefa plötunni mjög myndrænan og tignarlegan blæ. Hljómsveitin sá sjálf um upptökur á plötunni í Reykjavík og ferðaðist svo til New York borgar þar sem Grammy vinningshafinn Michael Brauer sá um hljóðblöndun.

Mono Town skipa bræðurnir Börkur Hrafn og Daði Birgissynir ásamt Bjarka Sigurðssyni sem eru allir laga- og textahöfundar sveitarinnar. Þeim til aðstoðar eru meðal annars þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson og Magnús Trygvason Elíassen.

18 ára aldurstakmark

Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696