
Það styttist í árlega Bergþórutónleika og að þessu sinni verður Ragnheiður Gröndal í aðalhlutverki, en auk hennar koma fram margir landsþekktir tónlistarmenn. Þar er um að ræða söngvarana Pálma Gunnarsson, Kristjönu Stefáns, Valdimar Guðmundsson og Svavar Knút. Ásamt þeim koma fram Guðmundur Pétursson, gítar, Haukur Gröndal, klarinett/saxófónn, Hjörleifur Valsson, fiðla, og Birgir Baldursson, slagverk.
Að vanda verða flutt mörg af þekktustu lögum Bergþóru Árnadóttur, sem ganga þó í endurnýjun lífdaga með ferskum útsetningum. Einnig verða flutt nokkur sjaldheyrðari lög og þar á meðal frumflutt lag sem Bergþóra samdi um miðjan níunda áratuginn en flutti aldrei opinberlega eða hljóðritaði. Eins og Bergþórutónleikum síðustu ára mun Valný Lára Jónsdóttir, sonardóttir Bergþóru, flytja eitthvert eftirlætislag úr smiðju ömmu sinnar.
Minningarsjóður Bergþóru Árnadóttur stendur að tónleikunum, en hann var stofnaður í framhaldi af velheppnuðum tónleikum vorið 2008 og í kjölfar veglegrar heildarútgáfu með verkum söngkonunnar. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að því að tónlist Bergþóru og minning lifi meðal þjóðarinnar. Árlegir minningartónleikar með mismunandi flytjendum og efnisskrá hafa notið mikilla vinsælda.
Bergþóra Árnadóttir (1948-2007) var einn af frumkvöðlum vísnatónlistar á Íslandi og lengi vel atkvæðamesta konan í hópi söngvaskálda. Hún samdi gjarna lög við ljóð þekktra skálda, þ.á.m. Steins Steinarrs, Tómasar Guðmundssonar og Jóhannesar úr Kötlum. Á ferli sínum sendi hún frá sér allmargar hljómplötur og hélt fjölda tónleika hérlendis og í Skandinavíu.