
Þann 29.janúar næstkomandi verður Baulan haldin í Silfurbergsal Hörpu. Baulan er söngkeppni Menntaskólans við Sund og um leið undankeppni skólans fyrir Söngvakeppni Framhaldsskólanna. Undanfarin ár hefur Baulan verið í glæsilegum búning og einn af flottustu viðburðum skólans.
Hægt og rólega höfum við byggt um stærð Baulunnar frá því að vera í Vetragarði Smáralindar, yfir í Austurbæ og loks í Hörpu og hefur hún aldrei verið glæsilegri en núna í ár.
Ekki láta þessa frábæru skemmtun framhjá þér fara og nældu þér í miða á Bauluna 2014