
Sinfóníuhjómsveit Íslands
Prats leikur Tsjajkovskíj
Endurkomu kúbverska píanóvirtúósins Jorge Luis Prats hefur verið tekið fagnandi eftir meira en 30 ára fjarveru frá hinu alþjóðlega tónleikasviði. Árið 1977 vann hann fyrstu verðlaun í Marguerite Long-Jacques Thibaud píanókeppninni. Í kjölfarið hóf Prats alþjóðlegan feril en sökum hamlandi vegabréfsáritana á Kúbu hvarf hann af sjónarsviðinu. Prats er snúinn aftur við ólýsanlega hrifningu tónleikagesta og gagnrýnenda. „Hann er besti píanistinn sem hlustendur hafa ekki heyrt af“ segir á opinberri vefsíðu BBC-tónlistartímaritsins. Það verður því einstakur viðburður að hlýða á hann flytja eitt helsta krúnudjásn píanótónbókmenntanna, Píanókonsert nr. 1 eftir Tsjajkovskíj.
Markus Poschner er tónlistarstjóri Fílharmóníusveitar Bremen og Bremen Theatre. Með nýstárlegum hugmyndum að efnisskrám hefur hann náð til mikils fjölda áheyrenda og er tónleikagestum á Íslandi að góðu kunnur því hann hefur áður stjórnað Sinfóníuhljómsveitinni með góðum árangri.
Prokofíev taldi 5. sinfóníuna vera sitt besta verk sem stæði jafnfætis áhugaverðustu sinfóníum 20. aldarinnar. Sinfóníunni, undir stjórn tónskáldsins, var mjög vel tekið strax við frumflutning 1945 en á þeim tímamótum stóð Prokofíev á hátindi ferlis síns.
Pjotr Tsjajkovskíj
Píanókonsert nr. 1
Sergei Prokofíev
Sinfónía nr. 5
Markus Poschner
hljómsveitarstjóri
Jorge Luis Prats
einleikari