
Draggkeppni Íslands fer fram í Hörpu þann 7. ágúst. Dragg er trúlega eitt elsta form leiklistar sem þekkist í heiminum og er sprottið upp frá þeim tímum er konum var meinaður aðgangur að því að koma fram á sviði í leiksýningum, sem gerði það að verkum að öll hlutverk kvenna í leikritum voru leikin af karlmönnum. Nú í dag keppast konur og karlar um að verða kóngur og drottning Íslands ár hvert. Um er að ræða 2 tíma hlátur skemmtun sem enginn vill missa af.