
Botnleðja er með líflegri og skemmtilegri jaðarsveitum síðustu áratuga og er því afar ánægjulegt að kynna endurkomu sveitarinnar með útgáfutónleikum í Austurbæ í tilefni af útgáfu safnplötunnar „Þegar öllu er á botninn hvolft“.
„Þegar öllu er á botninn hvolf“ er tvískipt safnplata sem inniheldur tvo geisladiska. Fyrri diskurinn inniheldur átján lög og þar af eru sextán bestu lög Botnleðju af breiðskífum sveitarinnar, sem eru fimm talsins. Einnig inniheldur fyrri diskurinn tvo glæný lög, „Slóði“ og „Panikkast“ sem er þegar farið að hljóma á öldum ljósvakans. Seinni diskurinn inniheldur áður óútgefnar upptökur, ábreiður sveitarinnar á lögum tónlistarmanna eins og Devo og Megas, enskar útgáfur laga, remix og tónleikaupptökur með Botnleðju sem ávallt hefur þótt frábær tónleikasveit.
Upphitun: Vök
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri og sjáðu eina bestu rokkhljómsveit Íslandssögunnar troða upp í Austurbæ, fimmtudagskvöldið 27. júní!