
Söngdúllurnar Svavar Knútur og Kristjana Stefáns koma aftur saman á sínum árlegu Jónsmessutónleikum í sjóminjasafninu Víkinni, sunnudagskvöldið 23. júní nk. og eiga saman dásamlega dúettastund.
Kristjana og Svavar Knútur hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir stórskemmtileg dúettakvöld, þar sem þau láta gamminn geysa og taka saman fjölbreytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly Parton með viðkomu hjá Nick Cave og Páli Ísólfssyni, auk frumsamdra laga og hinna ýmsu gleði- og tregabomba. Í ár munu lög um sjóinn ráða ríkjum og söngvar um samskipti manns og hafs eiga sinn stað, auk hefðbundinna ljúfra ballaða um ástina og lífið.
Tónleikarnir hefjast kl. 20, en einnig verður boðið upp á miðnæturtónleika fyrir þá sem eftir því sækjast og hefjast þeir kl. 22.30 Ef veður leyfir verða tónleikarnir úti á bryggju, en ef veðurguðirnir ygla sig og gretta verður flúið inn í kaffihúsið og kósýkvöldsstemmningin verður allsráðandi.
Við bendum gestum á að í Víkinni er dásamlegur veitingastaður sem gerir vel við fólk í mat og drykk og er um að gera að mæta snemma og fá sér gott að borða.
Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Þau gáfu út dúettaplötuna Glæður árið 2011 og hefur hún hlotið bráðgóðar viðtökur.
Best er að tryggja sér miða í tíma, enda takmarkaður miðafjöldi í boði. Börn eru hjartanlega velkomin með og ókeypis fyrir þau.