
Ítalski píanóleikarinn Benedetto Lupo vakti fyrst heimsathygli þegar hann hlaut bronsverðlaun í alþjóðlegu Van Cliburn píanókeppninni árið 1989. Í kjölfarið kom hann fram með nokkrum bandarískum sinfóníuhljómsveitum, lék með Tókýó strengjakvartettinum, auk þess sem hann hélt einleikstónleika í hinu virta Lincoln Center í New York og Ambassador Auditorium í Pasadena í Kaliforníu. Hvarvetna hlaut hann framúrskarandi viðtökur og lof gagnrýnenda. Lupo hefur unnið til fjölda verðlauna á ferlinum, t.d. Terence Judd verðlaunanna í Lundúnum, verðlauna í Alfred Cortot keppninni og Jaén keppninni, auk þess sem hann var einn verðlaunahafa í Robert Casadesus keppninni og alþjóðlegu Gina Bachauer píanókeppninni.
Benedetto Lupo hefur komið fram á tónleikum víðs vegar um Bandaríkin og Evrópu, með hljómsveitum á borð við sinfóníuhljómsveitir Chicago og Boston, fílharmóníusveitir Los Angeles og Lundúna og Gewandhaus hljómsveitina í Leipzig, svo aðeins fáeinar séu nefndar.
Benedetto Lupo hljóðritaði öll verk Schumanns fyrir píanó og hljómsveit ásamt Peter Maag og RSI útvarpshljómsveitinni. ARTS útgáfufyrirtækið gaf þær út. Þar má m.a. finna fyrstu hljóðritun á Konzertstück ópus 86 í útsetningu fyrir píanó. Fyrsta hljóðritun hans á Concerto Soirée, píanókonsert eftir Nino Rota, með Orchestra Sinfonica Siciliana, var gefin út árið 1992 af Nuova Era og síðar endurútgefin af ARTS og hlaut góðar viðtökur. Harmonia Mundi í Frakklandi gaf út nýja hljóðritun Lupos á Concerto Soirée árið 2005, en fyrir hana hlaut hann Diapason d'Or verðlaunin í Frakklandi.
Tónskáldið sjálft, Nino Rota, sem líklega er þekktastur fyrir kvikmyndatónlist sína, einkum við myndir Fellinis og Coppola, leiðbeindi Lupo á námsárunum við Piccinni tónlistarháskólann í Bari.
Benedetto Lupo kemur árlega fram á fjölmörgum tónleikum um allan heim, heldur meistaranámskeið og á jafnframt sæti í dómnefndum margra virtra, alþjóðlegra píanókeppna.