
Deep Purple þarf ekki að kynna. Þessi ótrúlega rokksveit var stofnuð árið 1968 og hefur haft gríðarleg áhrif á tónlistarheiminn og lög á borð við Hush, Smoke on the water, Child in time og ótal mörg fleiri hafa átt stóran þátt í að móta rokktónlist samtímans. Purple er enn í dag að mestu leyti skipuð meðlimum frá blómatíma sveitarinnar með forsöngvarann Ian Gillan fremstan meðal jafningja en þeir snillingarnir hafa hvergi slakað á og nýjasta plata þeirra, Now What?!, sem kom út nú í apríl hefur fengið frábæra dóma gagnrýnenda.
Tónleikar Deep Purple síðustu misseri hafa að sama skapi þótt með allra besta móti og því er svo komið að uppselt er hvar sem þeir hyggjast stíga niður fæti, enda gengur sá kvittur að þetta gæti verið síðasta tónleikaferðalagið. Deep Purple hefur spilað hér á landi í þrígang, 1974, 2004 og 2007. Þeir tónleikar tala fyrir sig sjálfir, fullt úr út dyrum í öll skiptin og tónleikagestir sammála, Deep Purple er einfaldlega í sérflokki.
Í tilefni af komu Deep Purple hafa fleiri meistarar ákveðið að kveða sér hljóðs. GOÐAFOSS er nýstofnuð ofurgrúppa meðlima hljómsveita á borð við Trúbrot, Mána, Náttúru og fleiri sveita frá blómatímanum og fara þar fremstir meðal jafningja þeir Magnús Kjartansson, Gunnar Þórðarson og Björgvin Gíslason. Eftir þessar hljómsveitir liggja stórkostlegar perlur sem margar hverjar hafa ekki verið hreyfðar í mörg ár eða jafnvel áratugi. Goðafoss lofar broti af því besta frá gullaldarárunum og verður það að teljast stórkostleg upphitun fyrir Deep Purple. Því má í raun segja að tónleikagestum verið boðið að ferðast aftur í tímann í Laugardalshöllinniþann 12. júlí næstkomandi.
Miðaverð:
A-svæði (aðgangur að stúku og gólfi): 12.900 kr
B-svæði (aðeins aðgangur að gólfi): 10.900 kr
Vinsamlegast athugið: Tónleikum Deep Purple hefur verið aflýst, starfsmenn Midi.is munu hafa samband á næstu dögum við þá aðila sem eiga miða á tónleikana vegna endurgreiðslu.