
Ojba Rasta er 10 manna stórsveit sem var stofnuð árið 2009. Hún spilar reggí tónlist með döbb ívafi og sækir áhrif í heimstónlist, kvikmyndatónlist, kvæðalög og annað sem til fellur og er eyra næst. Með upplífgandi hljóm sínum höfðar sveitin til mjög fjölbreytts hóps áheyrenda.
Ojba Rasta hefur vegnað vel á vinsældarlistum útvarpsstöðva, meðal annars komist í toppsæti vinsældalista Rásar 2 með laginu Baldursbrá og Einhvern veginn svona, og hefur auk þess hlotið lof fyrir líflega sviðsframkomu.
Fyrsta breiðskífa Ojba Rasta, sem margir voru orðnir langeygir eftir, kom út haustið 2012 en ný plata sveitarinnar, Friður, kom út síðast liðið haust og hefur verið að fá frábæra dóma. Platan var tekin upp af upptökustjóranum og tónlistarmanninum Gnúsa Yones og er öll á íslensku. Á plötunni kennir ýmissa grasa allt frá geimskotnu döbbi yfir í tyrkneska sýrutónlist. Óhætt er samt að fullyrða að með þessari annarri breiðskífu sinni hafi Ojba Rasta tekist að fullkomna hljóðheim sinn.