Þá eru Bjartmar og hljómsveitin hans loksins á leiðinni til okkar í Bæjarbíó eftir hálfs árs bið!
Bjartmar Guðlaugsson er flestum að góðu kunnur fyrir tónlist sína en hann hefur samið ógrynni af þekktum lögum sem hafa lifað með þjóðinni í áratugi.
Eitt fremsta skáld okkar sem skapað hefur karaktera eins og Sumarliða sem er fullur, tjáð hug týndu kynslóðarinnar, ljáð rödd afneitunar Alkans, strokið ástinni með að týna tímanum og svo mætti endalaust telja áfram. Hann mun flytja öll sín bestu lög hér í Bæjarbíói.
Það ætti enginn að láta þessa frábæru kvöldstund framhjá sér fara.