Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Messías eftir Händel - B svæði

$
0
0

Mótettukórinn, Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju og úrvalslið einsöngvara flytja Messías eftir Georg Friedrich Händel undir stjórn Harðar Áskelssonar á aðventu í ár. Messías er eitt háleitasta og fegursta verk tónlistarsögunnar. Flutningur á Messíasi er hátíðarviðburður sem enginn tónlistarunnandi má láta fram hjá sér fara. 

Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar hefur lengi verið meðal fremstu kóra Íslands. Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur. Þar má finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en líka kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum, auk þess sem kórinn hefur frumflutt fjölda íslenskra tónverka og unnið til verðlauna í alþjóðlegum kórakeppnum. 


Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju er skipuð úrvals hljóðfæraleikurum víðs vegar að úr heiminum og hefur undantekingarlaust fengið frábæra dóma fyrir leik sinn og hefur átt ómetanlegan þátt í að kynna flutningsmáta og hljóðfæri barokktímans hér á landi.  

Einsöngvarar eru: Herdís Anna Jónasdóttir sópran sem hlaut fyrr á þessu ári Grímuverðlaunin sem söngvari ársins fyrir hlutverk sitt Víólettu Valery í uppfærslu Íslensku Óperunnar á La Traviata, þýski kontratenórinn David Erler sem er einn af eftirsóknarverðustu einsöngvurum og barokksérfræðingum Evrópu, sænski tenórinn Martin Vanberg sem hefur raðað sér í fremstu raðir barokktenóra á Norðurlöndunum og Jóhann Kristinsson baritón sem í fyrra hlaut Íslensku Tónlistarverðlaunin í flokkinum Bjartasta vonin, fékk þriðju verðlaun og áhorfendaverðlaun alþjóðlegu ljóðasöngskeppninnar 'Das Lied' árið 2017 í Heidelberg og sigraði nýverið í Stellu Maris söngkeppninni. 

Miðaverð:
A svæði: 9.900kr.

B svæði: 5.900kr. (Forsöluverð til 15. nóvember. Miðaverð hækkar í 6.900kr. þann 15. nóvember)


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696