Einar þór, Pétur Örn, Magni & the Hafthors bjóða upp á fimmtudagsforleik fyrir Bræðsluna eins og mörg undanfarin ár. Að venju verður ekkert ákveðið prógram heldur ræður salurinn för. Allir syngja með og strákarnir líklegir að renna í flest lög sem er beðið um.
Sérstakir gestir í ár verða austfirsu stelpurnar í SoKaRa, þær Soffía Mjöll Sæmundsdóttir Thamdrup, Karen Ósk Björnsdóttir og Ragnhildur Elín Skúladóttir.