Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Alþjóðlegt orgelsumar/International Organ Summer - Guðmundur Sigurðsson - Tónleikar

$
0
0

TÓNLIST EFTIR/ MUSIC BY: Friðrik Bjarnason, Smára Ólason, Johann Pachebel, George Shearing og Huga Guðmundsson.

Guðmundur Sigurðsson hefur verið organisti Hafnarfjarðarkirkju frá 2006.  Hann lauk kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1996, þar sem  Hörður Áskelsson var orgelkennari hans, og burtfararprófi frá sama skóla 1998.  Vorið 2002 lauk hann meistaraprófi með láði frá Westminster Choir College í Princeton þar sem orgelkennari hans var Mark A. Anderson og kórstjórnarkennari hinn nafntogaði Joseph Flummerfelt.  Til námsins í Princeton hlaut Guðmundur styrk úr minningarsjóði Karls Sighvatssonar. Guðmundur hefur  komið fram á tónleikum hérlendis og erlendis, ýmist sem einleikari eða meðleikari með einsöngvurum og kórum. Hann er reynslumikill orgelkennari, var formaður FÍO/Organistadeildar FÍH á árunum 2004-2009 og er nú formaður Kirkjutónlistarráðs.  Guðmundur var helsti ráðgjafi Hafnarfjarðarkirkju við endurnýjun orgels kirkjunnar. Sú vinna leiddi til smíði á tveimur stílhreinum orgelum, Scheffler orgeli í þýskum síðrómantískum stíl 2008 og Wegscheider mið-þýsku barokkorgeli 2009. Guðmundur, söngkonan Magnea Tómasdóttir og tónvísindamaðurinn Smári Ólason unnu saman að gerð geisladisksins„... allt svo verði til dýrðar þér“ árið 2003 þar sem þau Guðmundur og Magnea fluttu útsetningar Smára á perlum úr þjóðlagaarfinum í útgáfu Smekkleysu. Vorið 2007  stofnaði hann Barbörukórinn sem haustið 2012 gaf út geisladiskinn „Syngið Drottni nýjan söng."  Undir stjórn Guðmundar hefur kórinn komið fram við fjölda kirkjulegra athafna og á tónleikum hérlendis og erlendis. Árið 2009 hleypti hann af stokkunum tónleikaröðinni „Hádegistónleikar í Hafnarfjarðarkirkju“ þar sem fram koma íslenskir orgelleikarar.  Í febrúar sl. kom út fyrsta orgeleinleiksplata Guðmundar „Haf“,  sem Hafnarfjarðarkirkja gefur út í tilefni af 10 ára afmæli orgelanna.  Um síðustu áramót voru Guðmundi veitt starfslaun listamanna í sex mánuði til að fylgja útgáfu plötunnar eftir með tónleikahaldi. 

Guðmundur Sigurðsson has been organist at Hafnarfjarðarkirkja since 2006.  He completed his studies from the School of church music of the national church of Iceland with a degree in church music in 2006, studying organ with Hörður Áskelsson,  and final organ examination in 1998. He completed his master’s degree with distinction in the spring of 2002 from Westminster Choir College in Princeton where his principal organ teacher was Mark A. Anderson and his choral conducting teachers Andrew Megill and Joseph Flummerfelt.  Guðmundur has appeared in concerts in Iceland and abroad, both as an organ soloist and as an accompanist with soloists and choirs. He has taught organ for many years, was president of the Society of Icelandic organists 2004-2009 and is now chairman of the church music council of the  Icelandic national church.   Guðmundur was the principal adviser when the church’s organ was renewed. The outcome of that project was the installation of two stylistically authentic instruments, an organ in German late romantic style by Christian Scheffler in 2008 and an organ in central German baroque style by Kristian Wegscheider in 2009.  The singer Magnea Tómasdóttir together with Guðmundur and Smári Ólason published a CD in 2003 „... allt svo verði til dýrðar þér“ where Magnea and Guðmundur perform Smári’s settings of treasures from the Icelandic folk music tradition. Guðmundur founded the St. Barbara chamber choir in 2007 which has published the CD „Syngið Drottni nýjan söng“. The choir performs regularly at Hafnarfjörður church and has held many concerts in Iceland and overseas. In 2009, Guðmundur inaugurated a series of midday organ concerts in Hafnarfjarðarkirkja.  Last February, his first organ solo CD was published, "Haf", celebrating the 10 years anniversary of the organs in Hafnarfjarðarkirkja.   Last January, Guðmundur was awarded the Icelandic state artists salary for six months for concert performances introducing the new CD.

Efnisskrá / Program:

Friðrik Bjarnason 1880-1962Prelúdía í  e-moll / Prelude in  E minor

Smári Ólason (1946-)  Orgelhugleiðing um íslenskt þjóðlag /     Organ meditation on an Icelandic folk song

Greinir Jesús um græna tréð /      Jesus meditates on the green and dry tree

Johann Pachelbel (1653-1706) Sálmalag og níu tilbrigði (partítur) / Hymn and nine variations (partitas) 

Was Gott tut, das ist wohlgetan / 

What God does, is done well

George Shearing (1919-2011) Orgelútsetning á amerískum sálmi / Organ meditation on an American hymn

So fades the lovely blooming flower

Hugi Guðmundsson (1977-)Haf  / Ocean 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696