
Jonathan Wilson og hljómsveit heldur tónleika í Kaldalóni mánudagskvöldið 25. nóvember 2013 kl. 20:00. Snorri Helgason og hljómsveit hitar upp.
Tónleikarnir marka upphaf tónleikaferðar Jonathan Wilson og hljómsveitar um Evrópu til að fylgja eftir útgáfu hljómplötunnar Fanfare. Fanfare kemur út hjá Bella Union 14. október næstkomandi og er beðið með mikilli eftirvæntingu. Samstarfsaðilar Wilsons á plötunni er meðal annars Graham Nash, David Crosby og Jackson Browne. Fyrri plata Wilson, Gentle Spirit, kom út 2011 hlaut frábæra dóma og endaði ofarlega á ótal árslistum tónlistartímarita það ár.
Snorri Helgason gaf nýverið út sína þriðju sólóskífu, plötuna Autumn Skies.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni tónleikafélagsins Ballöðu og tónlistarhátíðarinnar Rauðasandur Festival.