
Uppáhalds jólatónleikar Íslendinga verða haldnir í sjöunda sinn þann 14. desember næstkomandi og að venju verður gestalistinn glæsilegur og umgjörðin einstaklega tilkomumikil.
Gestgjafinn:
Björgvin Halldórsson
Jólagestir í ár:
Arnór Dan Arnarson
Eivör
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Gissur Páll Gissurarson
Helgi Björnsson
Hulda Björk Garðarsdóttir
Ragnhildur Gísladóttir
Unnsteinn Manuel Stefánsson
Sigríður Thorlacius
Svala Björgvins
Sérstakur gestur:
John Grant
Jólastjarnan
Söngvakeppnin Jólastjarnan verður auðvitað á sínum stað en þar fá krakkar 16 ára og yngri tækifæri til að láta ljós sitt skína. Sigurvegarinn kemur fram á tónleikunum eins og fyrri ár. Skráning stendur yfir Vísir.is/jolastjarnan til 23. okt. og fylgst verður náið með framvindu mála í Íslandi í dag á Stöð 2.