
Einar Lövdahl sendi frá sér plötuna Tímar án ráðaí upphafi ágúst síðastliðins. Þann 11. október næstkomandi hyggst hann blása til útgáfutónleika í Tjarnarbíó þar sem öll lög plötunnar verða flutt.
Lög af plötunni hafa hljómað í útvarpi síðastliðið árið auk þess sem platan sjálf var „Plata vikunnar“ á Rás 2 vikuna 16.-20. september.
Einar Lövdahl er 22 ára tónlistarmaður úr Vesturbænum. Tímar án ráða er frumraun hans í plötuútgáfu. Á tónleikum er einvalalið hljóðfæraleikara, Hjörðin svokallaða, honum til halds og trausts.
Dagskrá tónleika:
Húsið opnar kl. 20:30
Tónleikar hefjast kl. 21:30
Upphitun verður í höndum tónlistarmannsins Auðuns.
Miðaverð er 1.500 kr. en hægt verður að kaupa miða og geisladisk á 2.500 kr.
(Þeir sem kaupa miða á netinu geta því keypt diskinn á niðursettu verði, 1.000 kr., gegn framvísun miða.)