
Harpa kynnir í samstarfi við Stomp Productions og Glynis Henderson Productions:
STOMP stórkostleg bresk sýning sem hefur farið sigurför um heiminn. Nú verður STOMP sett á svið í Eldborgarsal Hörpu ferskara, hraðara og fyndnara en nokkru sinni fyrr.
Núna er tækifærið ef þú hefur aldrei séð þessa heimsfrægu sýningu sem hefur hrifið áhorfendur um heim allan. STOMP sameinar leikhús, dans og hryntónlist en átta flytjendur notast við stígvél, ruslafötur, sópa , vaska og margt fleira til að búa til stórkostlegan takt sem hrifið hefur áhorfendur um heim allan.